MömmuFit

19.990kr.

Næsta námskeið hefst 22. Nóvember 

MömmuFit er ætlað nýbökuðum og verðandi mæðrum sem vilja styrkja sig rólega í góðum félagsskap. Litlu krílin eru að sjálfsögðu velkomin með.

Æfingarnar miðast að þeim breytingum sem verða á líkamanum bæði á meðgöngu, í fæðingu og mánuðunum þar á eftir. Með það í huga leggjum við sérstaka áherslu á grindarbotns- og djúpvöðvaæfingar og farið yfir hvernig rétt öndun skiptir höfuðmáli í þessum æfingum.

Æfingarnar hefjast alltaf á góðri upphitun og lýkur á teygjum eða slökun.

Þjálfarar eru Jakobína Jónsdóttir og Hrafnhildur Sigurjónsdóttir.

Tímarnir eru á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 09:40-10:40.

Aðgangur að öllum opnum tímum fylgir námskeiðinu.

Á lager

MömmuFit

Á lager