Skemmtileg líkamsrækt fyrir krakka á aldrinum 8-11 ára (3.- 6. bekkur).
Áhersla er lögð á líkamsvitund, góða líkamsstöðu, styrk, úthald og liðleika. Æfingarnar eru frábær undirbúningur fyrir þau sem vilja æfa sjálfstætt seinna. Þau sem hafa nú þegar einhverja þekkingu, halda áfram að byggja ofan á hana.
Þau sem eru búsett í Reykjavík og vilja nýta Frístundastyrkinn geta ráðstafað honum í gegnum Sportabler og sent afrit af reikningi á jakobina [hjá] grandi101.is
Foreldrar athugið
- Nafn og kennitala unglingsins verður að fylgja með skráningu.
- Nafn, kennitala og símanúmer að minnsta kosti annars foreldris þarf að fylgja líka.
Kennt á mánudögum og miðvikudögum kl. 15:30 -16:30