MömmuFit er ætlað nýbökuðum og verðandi mæðrum sem vilja styrkja sig rólega í góðum félagsskap. Litlu krílin eru að sjálfsögðu velkomin með.

Æfingarnar miðast að þeim breytingum sem verða á líkamanum bæði á meðgöngu, í fæðingu og mánuðunum þar á eftir. Sérstök áhersla er lögð á styrktaræfingar með liðleika- og úthaldsæfingar í bland.

Æfingarnar hefjast alltaf á góðri upphitun og lýkur á teygjum eða slökun. 

Þjálfari er Jakobína Jónsdóttir.

Námskeiðið stendur yfir í fjórar vikur en tímarnir fara fram á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 09:40-10:40.